Thursday, March 15, 2007

Þriðja þrúgukvöldið!
Þriðja þrúgukvöld Þrúguklúbbsins Eikarinnar verður á morgun, föstudaginn 16. mars. Eikin mun hittast á heimili Steinþórs Helga Arnsteinssonar að Bárugötu 9 og er mæting stundvíslega upp úr klukkan 20.00. Þrúga kvöldsins er að þessu sinni hin þura en jafnframt ferska Sauvignon Blanc. Eins og vanalega mætir hver og einn með eina flösku og mun Frk. Edda sjá um framkvæmd smakksins að þessu sinni. Einnig þarf að huga að veitingum með veigunum. Meðlimir Eikarinnar mega því endilega láta vita í kommentakerfið hvað þær hyggast koma með. Það sem þarf er eftirfarandi:
Bagettubrauð
Ostar
Pestó
Sjálfur mun ég útvega kex, sultu, einhvern ost og líklegast örlítið meira.
Virðingarfyllst
Steinþór Helgi Arnsteinsson
PS. Reglur Þrúguklúbbsins Eikarinnar verða birtar hér á síðunni á morgun, auk þess sem þeim verður dreift til meðlima Eikarinnar á fundinum á föstudaginn.

5 comments:

Anonymous said...

Ég skal mæta með oststykki og ef ég verð í stuði þá kem ég með einhvað óvænt með.

Anonymous said...

það er skemmtilegt að vita af því a ðfr.Edda muni stjórna smakkinu þar sem síðast voru ófagmenn mættir í eldhúsið og trufla undirbúninginn og allt leystist upp í vitleysu..siggi ölvaður og allir farnir að rífast.

Anonymous said...

Samt góði punkturinn við síðasta kvöld var svakaleg fagmennska af þinni hálfu jón , þrefalt húrra fyrir því

Anonymous said...

Þakka fyrir það Róses...Já fagmennskan þarf að vera í fremsta flokki á svona fáguðum kvöldum eins og þrúgukvöldum.

Valgeir Örn said...

Ég ætla að koma við í Ostabúðinni