Friday, February 23, 2007


Nú er helgin að ganga í garð og vilja bara minna meðlimi Eikarinnar á að velja sér rétt vín og prufa einhvað nýtt til þess að bæta við fjölbreytnina og mæli ég með einhverju sýruríku fyrir þá sem eru í fýlu eða einhvað sterkt fyrir þá sem eru í góðum glans.
p.s. Svo mega meðlimir vera duglegri við það að skila eftir athugasemdir í athugasemda-tenglinum fyrir neðan pistilinn.

Tuesday, February 20, 2007




Nokkrar reglur um samsetningu á mat og víni

Með FEITUM mat er gott að vínið sé alkóhólríkt. Vínandinn brýtur niður fituna. Að sama skapi sé maturinn léttur, á vínið að vera létt.
Ef maturinn er SÚR þarf vínið líka að vera sýruríkt.
SÆTUR matur kallar á sætt vín.
Með STERKKRYDDUÐUM mat á ekki að hafa kröftug vín. Besta mótvægið við sterkt kryddbragð er fremur létt vín sem er sætt eða ávaxtaríkt.
SALTUR matur þarfnast víns sem hefur sætleika eða mikinn ávöxt eða sýru til að vega á móti saltbragðinu.
Með BEISKUM mat er gott að hafa vín sem hefur sætleika eða góðan ávöxt.

Monday, February 19, 2007




Valgeir Örn......
Nýr meðlimur hefur verið tekinn inn í Þrúguklúbbinn Eikina og er það enginn annar en Valgeir Örn Ragnarsson sem að hefur tekið sér sess á meðal áhugamanna um vín og mat og kemur hann án efa með skemmtilegan vínkil í hópinn og mun miðla reynslu sérstaklega þar sem hann hefur aldursforskot á okkur piltana en ekkert alltof mikið.
Bjóðum Valgeir hjartanlega velkominn.










Torres Gran Coronas Reserva
Kirsuberjarautt. Meðalfylling, þurrt, ferskt, þroskuð tannín með kryddaðan rauðan berjakeim og létta eikartóna.
Sigurvegarinn á þrúgukvöldinu föstudaginn. 1590kr



Jæja þá eru við að koma almennilega af stað með þetta þrúgudæmi. Steinþór er einmitt að smella niður reglugerð og verður gaman að sjá hvernig þetta kemur út allt saman.
Síðastliðin föstudag var annað kvöldið í þessari þrúgustemmningu sem við höfum náð að mynda og var tekinn fyrir þrúgan Cabernet Sauvignon. Eitt þrúgukvöld hefur verið haldið áður og var tekið fyrir hvítvínið Chardonnay þar sem að Steinþór var sigurvegarinn með skemmtilegan og léttann samt ávaxtaríkann Chardonnay.

Cabernet Sauvignon kvöldið fór fram í Blöndunni hjá Hafsteini og var tekið fyrir blindsmakk í þetta skiptið og gekk það hálf brösulega að koma sér af stað, Sigurður Eyþórsson mætti örlítið tipsy sem er stranglega bannað og mæli ég hér með því ef að Steinþór er ekki búinn að setja það í reglugerð að svo verði gert. Ostar og sulta og Baquette brauð var á boðstólnum og voru menn tilbúnir í smakk. Þar sem að sigurður var örlítið hífaður þá fór hann hamförum í það að opna sína flösku og tókst að troða kork-tappanum ofaní flöskuna og tróð skeið ofaní svo það mundi auðvelda að hella í glasið en allt kom fyrir ekki og var þetta eintómt vesen.
Blindsmakkið fór þannig fram að allar flöskunar voru huldar brúnum bréfpoka og sumar grænum 10-11 poka og var það ekki vel liðið yfirleitt í blindsmakki er álpappír notaður og þetta aðeins meira prófessíonalt. Sergei fékk að hljóma og leið ekki að löngu fyrr en títt nefndur Sigurður fór að snúa sér að heimspólitík og ekki að smakkinu og var eiginlega óviðráðanlegur. Róses fékk að stíga sín fyrstu skref á þessum mánaðarlegu hefð okkar þrúgumanna og var hann ekki alveg að stíga fyrstu skrefin í rétta átt því oft mátti finna ilminn af dauðum skunk en þá var það Róses að sleppa skotum sem er alveg stranglega bannað á svona þrúgukvöldum og ef að menn þurfa að láta gamminn geysa þá fá þeir að skreppa rétt frá og opna útidyrahurðina og leysa vind í rétta átt og þá helst austur-átt og utandyra. Ekki leið á löngu fyrr en að menn voru byrjaðir að breyta um músík og snúa sér hægt og rólega að villimennsku og blasta rafræna-dramatík. Annars var þetta kvöld ágætlega heppnað þrátt fyrir að allar reglur væru ekki komnar á réttan kjöl en þetta er allt saman á réttri leið og verður þetta góður lærdómur og gæti verði að leynigestir muni birtast á ókomnum þrúgukvöldum og þá með skemmtilegan vinkil inní þetta.
Þegar kommentakerfið er komið í gang þá getum við farið að ræða saman um næsta kvöld sem verður þá hvítvín og kem ég með þá uppástungu að þar verði tekið fyrir Sauvignon Blanc.