Monday, February 19, 2007











Torres Gran Coronas Reserva
Kirsuberjarautt. Meðalfylling, þurrt, ferskt, þroskuð tannín með kryddaðan rauðan berjakeim og létta eikartóna.
Sigurvegarinn á þrúgukvöldinu föstudaginn. 1590kr



Jæja þá eru við að koma almennilega af stað með þetta þrúgudæmi. Steinþór er einmitt að smella niður reglugerð og verður gaman að sjá hvernig þetta kemur út allt saman.
Síðastliðin föstudag var annað kvöldið í þessari þrúgustemmningu sem við höfum náð að mynda og var tekinn fyrir þrúgan Cabernet Sauvignon. Eitt þrúgukvöld hefur verið haldið áður og var tekið fyrir hvítvínið Chardonnay þar sem að Steinþór var sigurvegarinn með skemmtilegan og léttann samt ávaxtaríkann Chardonnay.

Cabernet Sauvignon kvöldið fór fram í Blöndunni hjá Hafsteini og var tekið fyrir blindsmakk í þetta skiptið og gekk það hálf brösulega að koma sér af stað, Sigurður Eyþórsson mætti örlítið tipsy sem er stranglega bannað og mæli ég hér með því ef að Steinþór er ekki búinn að setja það í reglugerð að svo verði gert. Ostar og sulta og Baquette brauð var á boðstólnum og voru menn tilbúnir í smakk. Þar sem að sigurður var örlítið hífaður þá fór hann hamförum í það að opna sína flösku og tókst að troða kork-tappanum ofaní flöskuna og tróð skeið ofaní svo það mundi auðvelda að hella í glasið en allt kom fyrir ekki og var þetta eintómt vesen.
Blindsmakkið fór þannig fram að allar flöskunar voru huldar brúnum bréfpoka og sumar grænum 10-11 poka og var það ekki vel liðið yfirleitt í blindsmakki er álpappír notaður og þetta aðeins meira prófessíonalt. Sergei fékk að hljóma og leið ekki að löngu fyrr en títt nefndur Sigurður fór að snúa sér að heimspólitík og ekki að smakkinu og var eiginlega óviðráðanlegur. Róses fékk að stíga sín fyrstu skref á þessum mánaðarlegu hefð okkar þrúgumanna og var hann ekki alveg að stíga fyrstu skrefin í rétta átt því oft mátti finna ilminn af dauðum skunk en þá var það Róses að sleppa skotum sem er alveg stranglega bannað á svona þrúgukvöldum og ef að menn þurfa að láta gamminn geysa þá fá þeir að skreppa rétt frá og opna útidyrahurðina og leysa vind í rétta átt og þá helst austur-átt og utandyra. Ekki leið á löngu fyrr en að menn voru byrjaðir að breyta um músík og snúa sér hægt og rólega að villimennsku og blasta rafræna-dramatík. Annars var þetta kvöld ágætlega heppnað þrátt fyrir að allar reglur væru ekki komnar á réttan kjöl en þetta er allt saman á réttri leið og verður þetta góður lærdómur og gæti verði að leynigestir muni birtast á ókomnum þrúgukvöldum og þá með skemmtilegan vinkil inní þetta.
Þegar kommentakerfið er komið í gang þá getum við farið að ræða saman um næsta kvöld sem verður þá hvítvín og kem ég með þá uppástungu að þar verði tekið fyrir Sauvignon Blanc.

4 comments:

Anonymous said...

Menn þurfa a ðkoma sér saman með dagsetningu á næsta kvöldi og staðsetningu en það er hvítt kvöld næst og verður tekið fyrir Sauvignon Blanc. Endilega kommentið á þetta.

Anonymous said...

Mér finnst bara fljótlega í mars, kannski rétt fyrir hann miðjan, meðan menn eiga enn pening...

Anonymous said...

1 eða önnur helgin í mars....Hinir þurfa að fara kommenta á þetta

Anonymous said...

Alls ekki fyrsta helgin en sú nr 2 sleppur. og já hvar eru hinir, eru þeir kannski bara svona tapsárir???