Friday, March 16, 2007

Hérna kæru vinir eru lög Þrúguklúbbsins Eikarinnar. Þau má einnig nálgast hér til hliðar og verða hér eftir aðgengileg þar. Síðan sé ég ykkur spræka í kvellana...

Stjórnarskrá Þrúguklúbbsins Eikarinnar

Almennt
1.1 Einkennisorð Eikarinnar eru: Fágun, fagmennska og glæsileiki. Þessi einkunarorð verða meðlimir klúbbsins alltaf að hafa að leiðarljósi á fundum Eikarinnar.
1.2 Eikin skal stefna að þrúgukvöldum einu sinni í mánuði. Þó má líða lengra á milli kvölda en alls ekki meir en tveir mánuðir.
1.3 Á hverju kvöldi skal tekin fyrir ein þrúga af annað hvort rauðvíni eða hvítvíni. Einnig má taka fyrir kampavín, freyðivín eða ákveðin héruð eða svæði.
1.4 Þrúgukvöld Eikarinnar eru eingöngu ætluð meðlimum klúbbsins og engum öðrum. Gestir eru þó leyfilegir undir vissum kringumstæðum. Þeir verða fyrir það fyrsta að falla undir einkennisorð Eikarinnar og að sjálfsögðu þurfa þeir að fara eftir stjórnarskrá þessari. Gestir verða líka að koma með því markmiði að bæta kvöld Eikarinnar og auka almenn gæði meðlimi, til dæmis með því að bæta eitthvert af einkennisorðum Eikarinnar. Forsenda fyrir komu gests er að hún hafi verið samþykkt með meirihluta atkvæða meðlima Eikarinnar.
1 Vínið
2.1 Hver og einn meðlimur Eikarinnar skal hafa með sér eina flösku af víni sem þarf að innihalda þá þrúgu eða tegund sem fyrir verður tekin á kvöldinu hverju sinni.
2.2 Vínflöskuna þarf hver og einn meðlimur að velja sjálfur af kostgæfni. Óheimilt er með öllu að fá hjálp við val á flösku, þar með talin aðstoð starfsmanns í Ríkinu, ábendingar af skiltum, auglýsingum eða hvers kyns nýlegri umfjöllun. Þekking, til dæmis af lestri, námskeiðum, vínsmökkun og almennri neyslu áfengis, telst ekki sem brot á þessari reglu. Verði meðlimur Eikarinnar uppvís að broti á þessari reglu mun viðkomandi ekki fá að mæta í smökkun á því þrúgukvöldi en skal hins vegar láta flöskuna af hendi til annara meðlima Eikarinnar sem refsingu.
2.3 Mæti einhver með kassavín verður sá og hinn sami umsvifalaust vikið úr húsi og úr klúbbi. Viðkomandi skal hins vegar skilja vínið sitt eftir, hinum til drykkjar.
2.4 Ráðlagt er að menn komi með flöskur sem bera korktappa. Plasttappar og/eða skrúfutappar eru þó ekki með öllu bannaðir, sérstaklega ekki á hvítvíni.
2.5 Verð á víní sem meðlimir koma með er ekki takmörkum háð. Þó mun meðlimur hljóta ákveðna skömm af því að mæta á þrúgukvöld með vín sem kostar undir 1000 krónum.

3 Undirbúningur
3.1 Þrúgukvöld Eikarinnar skulu haldin á útvöldum stað og skal sá staður vera auglýstur með fyrirvara.
3.2 Þrúgukvöldin skulu ætíð vera haldin á virkum degi, það er, ekki á laugardegi eða sunnudegi.
3.3 Fyrir hvert kvöld skulu meðlimir Eikarinnar koma sér saman um hvaða veitingar skuli framreiða og hver þurfi að koma með kaupa hvað.
3.4 Neysla áfengra drykkja fyrir Þrúgukvöld er með öllu óheimil.
3.5 Snyrtilegur klæðnaður er skylda. Bindi eru æskileg en þó ekki alger nauðsyn.


4 Þrúgukvöldin
4.1 Veitingar verða alltaf að vera til borðs á þrúgukvöldum Eikarinnar. Veitingarnar eru valbundnar en þó verður eftirfarandi alltaf að vera á boðstólunum: Kex, ostar og pestó.
4.2 Tónlistin sem ómar á stað þeim er þrúgukvöldin fara fram verður að vera mest megnis undan rifjum Serge Gainsbourg komin. Önnur tónlist þarf helst að vera evrópsk eða afrísk. Síst af öllu má hún þó vera amerísk nema að þema kvöldsins sé til dæmis vín frá Napa-dalnum í Kaliforníu eða þess háttar.
4.3 Tónlist með Simply Red verður að fá að hljóma á hverju þrúgukvöldi.
4.4 Red Red Wine með UB40 verður einnig að fá að hljóma
4.5 Smökkunin á þrúgu kvöldsins skal alltaf vera það atriði sem mestu athyglina fær á hverju þrúgukvöldi
4.6 Smakkið fer þannig fram að hver og einn lætur sína flösku inn í eldhús, helst í poka. Einn aðili, helst utanaðkoamndi, skal síðan sjá um að vefja hverja flösku inn í álpappír. Flöskunum er síðan ruglað og merktar frá einum og upp úr, allt eftir fjölda. Síðan er farið með eina flösku í einu fram og hver og einn fær vín í sitt glas. Síðan er smakkað og loks einkun gefin á bilinu einn og upp í tíu. Þegar allir hafa smakkað öll vínin og gefið einkunir skal einn sjá um það að safna saman einkunum, leggja þær saman og finna út hvaða flaska stendur upp sem sigurvegari kvöldsins.
4.7 Flöskum skal ekki vafið inn í neitt annað en álpappír, engar undantekningar.
4.8 Glös sem drukkið er úr þurfa helst að vera frá Spiegelau, Rosentahl, Riedel eða Iittala en er þó ekki skylda. Þó er algjör skylda að drukkið sé úr viðurkenndum vínglösum.
4.9 Breyta má einkun eftir því sem á smökkun líður og/eða áður en einkunum er skilað.
4.10 Á meðan Þrúgukvöldi stendur er bannað að láta sjást í bert hold milli sokks og skálmar.
4.11 Brot á lögum Stjórnarskrár Þrúguklúbbsins Eikarinnar varða við fjársektir eða fangelsi í allt að heilum sólarhring.

No comments: